14.11.2007 | 18:08
Miðvikudagur í Cheny
Hæ
Ég get alveg upplýst ykkur um að það er sko ekki mcdonalds eða kfc hérna!!!!!!því er nú ver og miður:( en við tökum þetta bara á bjartsýninni and the viking power, Er nú orðinn þokkalega leiður á mötuneytis matnum í verksmiðjunni. Alltaf sama jukkið, ég bara fæ hroll þegar ég huga um matinn þar brrrrrrrr........ .
Verðlagið hérna er ótrúlegt, bensínlítrinn kostar ca 50 kall, bjórinn 60 kall, gosið 60 kall Ég fór út í búð og keypti helling, brauð ,djús gos nammi sjampó ofl drasl. 500 kall!!!!!!!!!. Enda er fólkið hérna ekki með háar tekjur, ein háttsett kona í verksmiðjunni sagði mér að hún væri með 8000 rúblur í mánaðarlaun = 20000 ísk. ekki mikið það.
Merkilegt hvað fólkið hérna tala litla ensku, það er einna helst ungt fólk sem getur babblað smá , en það eldra bara ekki neitt, ég lennti í alveg hróka samræðum við eldri mann í dag, hann var sko rússi, hann babblaði eitthvað rússní grúsní og ég svaraði á ensku, hann hélt áfram og ég hristi hausinn og svaraði á ensku, heyrðu neinei hann bara heldur áfram og áfram kallinn, og ég sagði bara nét og hann bara bullar og bullar, þetta bull endaði með því að ég sagði bara da ( da = já ) og brosti, þá brosti kallinn og fór, skrítið? Ekki hafði ég minnsta grun hvað hann vildi þessi kall.
Fyrir þá sem hafa áhuga þá fóru 33000 litlir kjúllar í gegnum kerfið í dag, þegar þetta verður í fullri keyrslu á þetta að geta afkastað 90000 kjúllum á dag. 9000 á klukkutíma.
Búinn að læra 3 orð
Da = já
Nét = nei
Plaziba = takk
Rússní grúússní
Sæmi
Um bloggið
Sæmundur Sæmundsson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður
Gaman að lesa þetta gamli. Þetta er auðvitað bara snilld, þetta land :) Vertu áfram duglegur að blogga, það er svo gaman að lesa þetta.
Birnir Þór situr núna inni stofu og er að telja peningana sína. Búinn að setja allt klinkið í peningakassann sem mamma þín og pabbi áttu og svo eru seðlarnir taldir... 32.500 kr. (ein og hálf mánaðarlaun háttsettrar skrifstofukonu í Rússí)... og svo vantar eitthvað smá þarna í veskið. Spuning hver hefur fengð lánaða nokkra þúsundkalla??? hmm...
Kær kveðja og stórt knús,
Erna
Erna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 19:59
Hæ Sæmi, já það er gaman að fylgjast aðeins með þér í Rússlandi, greinilega ekkert svipað á Ísl. í dag. Kveðjur úr Ljósuvík.
mamma og pabbi (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 20:14
Halló
Það er gott að eitthvað er jákvætt þarna, það bætir þá væntanlega matinn upp. Ég hélt bara að það væri ekkert til í matvöruverslunum þarna í Rússlandi. Það er a.m.k. þannig í fréttunum.
Kveðja, Hulda
Hulda (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 20:15
hæ pabbi vonandi gangi þér i russo vertu duglegur að vinna ér er hjá afa of ömmu og ætla kannski að sofa hér
ég ætlaði að skipta um dekk á mikru en veðrið var of vont ég vona að helgin verði góð hjá þér.
Er snjór hjá þér í russo er ekki gaman að ferðast um í LÖTUM
kiss kiss elsku pabbi
birnir hjá afa (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 19:38
Hæ birnir, já hérna er líka byrjað að snjóa og það er bara fínt að ferðast í lada, ég er líka búinn að sjá miklu fleiri gerðir af lada bílum, sem sáust ekki á íslandi.
Vertu duglegur í skólanum og í boltanum :)
Bestu kveðjur Pabbi
Sæmundur Sæmundsson, 17.11.2007 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.