Vetur

Jæja þá er veturinn kominn hérna, -15 skafrenningur og hálka, þannig að við erum enn lengur á leiðinni út í verksmiðju. ótrúlegt með þessar lödur þær bara keyra og keyra....ég er alltaf að sjá eldgamlar lödur í bland við glænýjar. Spurning um að kaupa eina :)

Þá er bara vika eftir af þessu ævintýri, já þetta er sko ævintýri sem ekki allir fá að reyna, að koma til rússlands, það er ekki svo einfalt að maður geti bara pantað flug og skroppið hingað ónei, það er þannig að þú verður að hafa heimboð og áritun. ég er hérna í boði Chelny Broiler ehf :) kvöldin hjá mér fara mest í að horfa á sjónvarpið og skoða eitthvað í tölvunni, núna síðast var ég að fara í gegnum myndaalbúmið í tölvunni, þar var auðvitað eitthvað sem ég átti eftir að sjá, td er mikið um myndir af Birni og vá hvað drengurinn hefur stækkað og breyst á einu ári WOOWWW, er þetta hægt fann slatta af video myndum sem ég hafði ekki séð :)  ekkert smá flottur á rafmagnsbílnum á yrjum, hjólandi yfir skarfaneslækinn, syngjandi sveittur með gítarinn, algjör TÖFFARI.

Var að tala við enskumælandi rússa áðan og hann var mjög áhugasamur um ísland, hann átti bágt með að trúa því að við hitum húsin okkar upp með heitu vatni úr jörðinni, hér í rússlandi eru húsin hituð með olíu eða gasi, og er mjög dýrt. honum fannst líka mjög skrítið að við endurnýtum ekki vatnið þegar það er búið að hita húsin, það fer bara út í sjó sagði ég og hann átti ekki til orð !!!

Heyrumst

Sæmi

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hellú... Gaman að þessu :) Verst að það eru ekki eldgömlu videóin inni á tölvunni líka, frá því hann var líti kríli. En VÁÁÁÁ hvað ég hlakka til að sjá þig eftir viku. Birnir leikur sér bara endalaust með playmoið núna, hann bara getur ekki slitið sig frá því. Er að breyta bílum út í eitt. Svo segir hann bara "æi, mamma... þú skilur ekki, þessi stuðari er ekki til að keppa með" haha!

Erna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 18:00

2 identicon

Halló Sæmi

Ég vona að þú komir ekki með Lödu heim í farangrinum þínum það er nó að drasli hér á landi.

Mér skilst að það sé verið að smíða heima hjá þér og vona ég að það verði búið þegar þú kemur heim

Er ekkert hægt að versla þarna ekki verfæri eða eitthvð svoleiðis ?

jóhann (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 19:08

3 identicon

Hæ, já ég held að ég hafi fengið nóg af LÖDU- tímabilinu, við Kiddi vorum að rifja upp þegar við lögðum af stað í leikskólann forðum daga og gátum ekki lokað hurðinni afturí  þegar mikið frost var, og Kiddi hélt dauðahaldi í  trefilinn sem við settum um handfangið . Allt gott hér heima, meira að segja hiti í lofti  kveðja úr Ljósuvík.

mamma (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 19:59

4 identicon

Halló

Skemmtu þér vel í kuldanum í Rússlandi. Hér er alveg hátt í 8 stiga hiti.

Kveðja, Hulda

Hulda (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sæmundur Sæmundsson

Höfundur

Sæmundur Sæmundsson
Sæmundur Sæmundsson
Pabbi, "eiginmaður", vélsmiður, rallykarl, fótboltastrákur...

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Birnir skrímsli
  • Flott skilti !
  • Bara gaman
  • Vestfirðir 2007
  • Rallybílstjóri

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband