23.11.2007 | 18:28
JÁ FÍNT
Hæ
Þá er bara komið föstudagskvöld, Var að troða í mig steik sem ég beið eftir í ca 1 klst, :) þetta virðist alltaf taka amk um 1,5 klst að borða hérna!!!það hentar mér ekkert sérstaklega vel........þetta er nú yfirleitt mjög einfalt hjá mér :) en ...............ég hef nú víst alveg nægan tíma enda ekki mikið fyrir stafni akkúrat núna, fyrir utan auðvitað eurosport, vissuð þið að núna er í gangi evrópumótið í FUTSAL ????? nei það vita nú ekki margir af því :) en það er evrópumót landsliða í innanhússfótbolta, 4 menn + markvörður, alveg einstök skemmtun fyrir utan rússnensku þulina, en þeir eiga örugglega stórleik líka.
Ég var eitthvað búinn að minnast á vegina hérna! en þeir eru alveg sér á parti, sumstaðar eru notaðar forsteyptar einingar með mismiklum ójöfnum, annarstaðar eru göturnar bara orðnar gamlar og þarfnast viðhalds, en þetta er allt annað í dag, í dag er snjór og klaki og þá er göturnar miklu sléttari, ótrúlegt en satt :) og mun þægilegra fyrir alla.
Sæmi
Um bloggið
Sæmundur Sæmundsson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég segi bara.... 3 daaaaaagar!! Jibbý... við erum svo spennt að fá þig heim. Kveðja, Erna og Birnir Þór
Erna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 19:11
Halló
Gott að þú skemmtir þér vel þarna.
Kveðja, Hulda
Hulda (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 19:43
Hæ Sæmi. já aðeins er að kólna hér heima, Kiddi og Svandís keyrðu til Akureyrar í kvöld voru komin kl. 22:00 , það var hálka og snjókoma á leiðinni, þau fóru á mínum bíl að sjálfsögðu á nagladekkjum, löggan stoppaði þau rétt við Varmahlíð á 70 km. hraða þar sem leyfilegt er 50 km. svo þau fá sekt, en löggan ánægð með dekkin. Við settum húsið á söluskrá í dag til prufu.kveðja úr Ljósuvík.
mamma (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.