14.3.2008 | 23:38
Prinsessa
Hæ
Í gær kl 16:30 Kom í heiminn lítil stúlka Sæmundardóttir :) En hún lét aldeilis bíða eftir sér í heil 8 ár ....................
já birnir þór verður 9 ára í haust, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
Móður og barni heilsast vel og koma vonandi heim á morgun.
lengd og þyngd er fréttaritari ekki alveg með á hreinu en hún er eitthvað léttari og styttri en stóri bróðir var, þegar hann fæddist.
Sæmi Sæm
Reyni að koma myndum inn á morgun.
24.12.2007 | 11:19
Jólakveðja
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Jólakveðja Sæmi Sæm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.12.2007 | 11:35
JÁ Sæll........
Hæ
Ég var að setja inn myndir frá rússlandi og nokkrar rallmyndir frá síðustu árum, endilega kíkið á þetta.
Sæmi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2007 | 22:15
JÁ FÍNT
Hæ
Þá er maður bara kominn heim á skerið :) ferðalagið gekk vonum framar, eftir að hafa ferðast með 3 flugvélum á tæpum 23 tímum, þá komst ég á leiðarenda, sæll og glaður, já og mjög þreyttur.
Um helgina ætlum við birnir að hafa mjög gaman, ernan er farin til USA, Þannig að þetta verða feðgadagar með öllu tilheyrandi,
Kv Sæmi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2007 | 19:28
JÁ SÆLL
Jæja þá er bara komið að því heimferð á morgun, Í gær fórum við í mollið og kíktum svo á ítalskan veitingastað um kvöldið, dagurinn í dag hefur að mestu farið í að bíða eftir morgundeginum....maður er greinilega ekki vanur svona dögum, þeas að hafa bara ekkert að gera. Var að spá í að hlaupa út í búð og kaupa playstation en ég hafði þetta nú af, fór í staðin í heljarinar göngutúr, og sá bara ekkert nýtt, nema eitt, haldiði að ég hafi ekki bara fundið mcdonalds hérna!!!!!! alveg týpískt.....í næsta nágrenni og ég búinn að vera hérna í 3 vikur !!!!!!!!! JÁ SÆLL , en svona er þetta bara.
Ferðalagið hefst hér á flugvellinum, kl 5.15 og við fljúgum til moskvu, þaðan til köben og svo heim. þetta verða ca 8 tímar í flugvélum :( áætlaður lendingartími í keflavík er 22.20 að ísl. tíma.
Sæmi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.11.2007 | 18:28
JÁ FÍNT
Hæ
Þá er bara komið föstudagskvöld, Var að troða í mig steik sem ég beið eftir í ca 1 klst, :) þetta virðist alltaf taka amk um 1,5 klst að borða hérna!!!það hentar mér ekkert sérstaklega vel........þetta er nú yfirleitt mjög einfalt hjá mér :) en ...............ég hef nú víst alveg nægan tíma enda ekki mikið fyrir stafni akkúrat núna, fyrir utan auðvitað eurosport, vissuð þið að núna er í gangi evrópumótið í FUTSAL ????? nei það vita nú ekki margir af því :) en það er evrópumót landsliða í innanhússfótbolta, 4 menn + markvörður, alveg einstök skemmtun fyrir utan rússnensku þulina, en þeir eiga örugglega stórleik líka.
Ég var eitthvað búinn að minnast á vegina hérna! en þeir eru alveg sér á parti, sumstaðar eru notaðar forsteyptar einingar með mismiklum ójöfnum, annarstaðar eru göturnar bara orðnar gamlar og þarfnast viðhalds, en þetta er allt annað í dag, í dag er snjór og klaki og þá er göturnar miklu sléttari, ótrúlegt en satt :) og mun þægilegra fyrir alla.
Sæmi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.11.2007 | 17:51
JÁ SÆLL
Hæ
skítakuldi ennþá hér í rússlandi, hahaha ég sem kom með stuttbuxur . Veturnir hérna geta verið ansi harðir allt upp í -40, og það er eins með sumrin hérna í júlí var +35.
Lenti í alveg furðulegu í dag, (þetta er nú allt meira og minna fuðurlegt), nema hvað ég fór á klósettið.............þau eru frekar ógeðsleg, nema hvað ég er að fara inn á klósettið og kemur ekki rússnesk kona út, ok allt í lagi með það, þær þurfa víst líka að pissa, þegar ég kem inn á þetta líka sóðalega klósett þá sá ég nú ekki alveg hvernig þessi kona gat sest á setuna?? það var bara allt gullt (piss) út um allt á setunni ,ég brosti nú út í annað og hugsaði með mér hún erna mín gæti nú aldrei pissað hér :) hvað haldiði að ég hafi þá séð???? daddarrrra fótspor á setunni?????? hvað er í gangi hér..........JÁ SÆLL , Eigum við að ræða þetta eitthvað??? þær bara standa á klósettinu! , Já konurnar geta nú líka pissað framhjá :) Þannig að ég er með þá kenningu að það séu konurnar þarna sem pissa svona líka mikið framhjá :)
Jæja langaði bara að deila þessu með ykkur
Kveðja
Sæmi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.11.2007 | 16:58
Vetur
Hæ
Jæja þá er veturinn kominn hérna, -15 skafrenningur og hálka, þannig að við erum enn lengur á leiðinni út í verksmiðju. ótrúlegt með þessar lödur þær bara keyra og keyra....ég er alltaf að sjá eldgamlar lödur í bland við glænýjar. Spurning um að kaupa eina :)
Þá er bara vika eftir af þessu ævintýri, já þetta er sko ævintýri sem ekki allir fá að reyna, að koma til rússlands, það er ekki svo einfalt að maður geti bara pantað flug og skroppið hingað ónei, það er þannig að þú verður að hafa heimboð og áritun. ég er hérna í boði Chelny Broiler ehf :) kvöldin hjá mér fara mest í að horfa á sjónvarpið og skoða eitthvað í tölvunni, núna síðast var ég að fara í gegnum myndaalbúmið í tölvunni, þar var auðvitað eitthvað sem ég átti eftir að sjá, td er mikið um myndir af Birni og vá hvað drengurinn hefur stækkað og breyst á einu ári WOOWWW, er þetta hægt fann slatta af video myndum sem ég hafði ekki séð :) ekkert smá flottur á rafmagnsbílnum á yrjum, hjólandi yfir skarfaneslækinn, syngjandi sveittur með gítarinn, algjör TÖFFARI.
Var að tala við enskumælandi rússa áðan og hann var mjög áhugasamur um ísland, hann átti bágt með að trúa því að við hitum húsin okkar upp með heitu vatni úr jörðinni, hér í rússlandi eru húsin hituð með olíu eða gasi, og er mjög dýrt. honum fannst líka mjög skrítið að við endurnýtum ekki vatnið þegar það er búið að hita húsin, það fer bara út í sjó sagði ég og hann átti ekki til orð !!!
Heyrumst
Sæmi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.11.2007 | 11:59
Snjór og hálka
Hæ
Héðan er allt gott að frétta, snjór og slydda til skiptis, í gær laugardag skelltum við okkur í mollið á staðnum og skoðuðum okkur um, þetta er bara svipað og heima nema kanski ekki eins mikið lagt í búðirnar, svo eru þær yfirleitt mikklu minni, mikið um skóbúðir, veit ekki afhverju? frá mollinu feðuðumst við á mjög nýlegum Lada sport 5 dyra :) Kvöldið fór svo í að horfa á fótbolta á rússnesku!!!
Í dag Fórum við aftur á markaðinn, í snjókomu og mikilli hálku, brjálað að gera alltaf á þessum markaði, keypum ekkert en tókum myndir og höfðum gaman af. Þetta er allt svo mikið öðruvísi en maður á að venjast, það er nú oft stutt í hláturinn hjá manni, t.d fórum við í kjötbúð þar var sölumaðurinn bara með öxi í hönd og bara slátraði eftir þörfum hvers og eins á staðnum!!!! við hliðina á honum var kona að hakka kjöt í lítilli hrærivél, ég hef nú ekki séð svona aðfarir síðan í melselinu á síðustu öld!!! hahaha Nú eru flestir íslendingarnir farnir heim, eftir eru ég og Bragi við verðum hér fram á mánudaginn 26/11. Þess má geta að á föstudaginn fóru 55 þús kjúllar í gegn hjá okkur :) hey hvað kostar kílóið af kjúlla á Íslandi? hérna kostar það ca 90 rúblur kílóið = 230 kall ísk
Ég vil óska afmælisbörnum dagsins innilega til hamingju með daginn, þeas Einar dúi og pabbi.Góða skemmtun í dag :)
Kveðja frá russia
Sæmi Sæm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2007 | 21:39
Föstudagur
Hæ
héðan er allt fínt að frétta, var að koma af skemmtistað, þar var einhver "geirmundur" að brillera :) og flutti okkur þessa fínu tónlist, auðvitað skildum við ekki neitt í textunum en , hann hljómaði ótrúlega líkt og geirmundur okkar.
Alltaf þegar maður hugsar um rússland þá koma gömlu sovétríkin upp í hugann, og þar var nú heldur betur vöruskortur ójá, en í dag árið 2007 þá mundi maður ætla að það væri nú ekki til staðar, en viti menn það er hér enn!!!!! hjá kaupmanninum á horninu okkar kemur ekkert nýtt í hillurnar??? það bara klárast og það kemur bara ekkert aftur, sem kemur sér einstaklega illa við mig!! hvernig? nú það er nú bara þannig með mig að þegar ég er búinn að finna eitthvað sem er ætt, og ég ætla að kaupa það aftur, er það bara BÚIÐ!!! og hefur ekkert sést í búiðnni í viku!!!! alveg fáránlegt. það er eins með vatnið, rússarnir drekka vatn með gosi (sódavatn), daginn sem ég kom þá rambaði ég á að kaupa goslaust vatn, og var heldur betur lukkulegur með það, en viti menn ég mundi auðvitað ekkert hvernig sú flaska leit út eða hvað hún hét, og dag eftir dag er ég búinn að fá vatn með gosi, :( sem er ekki gott á bragðið.
Góða nótt
Sæmi
Bloggar | Breytt 17.11.2007 kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Sæmundur Sæmundsson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar